Your cart is currently empty!
Morgunflæði á ströndinni
Endurnærandi stund við sjóinn þar sem mjúkt jógaflæði og öndunaræfingar munu leiða þig inn í dýpri kyrrð
In stock
Description
MORGUNFLÆÐI
Endurnærandi stund við sjóinn
Hér verður lögð áhersla á mjúkt jógaflæði, léttar teygjur og meðvitaðar öndunaræfingar
Hentar öllum, jafnt byrjendum sem og lengra komnum
Einstakt tækifæri til að skapa rými fyrir innri ró og styrkja líkamlega & andlega vellíðan
Staðsetning : Ströndin við Othon hótel (nákvæm staðsetning verður send út síðar)
Dagsetning : Fimmtudagur 5.febrúar
Tími : kl 6.30-7.30
Verð : 5500 kr
Takmarkað pláss í boði
Skráning er bindandi
Leiðbeinendur :
Eva Katrín Sigurðardóttir – eva@evasbreath.is
Silja Hrund Einarsdóttir – siljahrund@gmail.com
Um Evu :
Eva er almennur læknir, viðurkenndur Thermalist instructor frá Soeberg Institute, Wim Hof Method leiðbeinandi og HRV breathwork leiðbeinandi frá Aria Breath. Eva brennur fyrir auknum forvörnum og bættri lýðheilsu almennt en hefur upp á síðkastið lagt sérstaka áherslu á almenna kvenheilsu.
Um Silju :
Silja er með B.Sc. í umhverfis & byggingarverkfræði, viðurkenndur jógakennari (200klst jógakennaranám) og hefur einnig bætt við sig réttindum í Yin jóga, Bandvefslosun/Body Reroll og Yoga Nidra. Silja hefur undanfarin 5 ár kennt jóga bæði hérlendis og erlendis. Hún er í eigin rekstri, rekur kaffihús í miðbæ Selfoss og stundar útiveru og jóga til að minnka streitu og auka jafnvægi í daglegu lífi.
Related products
-
Kvöldkyrrð við sjóinn
5.500 kr. m. vsk -
Morgunflæði á ströndinni
5.500 kr. m. vsk -
Sólarhylling við sólarupprás
5.500 kr. m. vsk

