ukiyoyoga

HUGARRÓ & DJÚPSLÖKUN í Hvammsvík – 18.október 2026

45.000 kr. – 72.000 kr.
Sunnudagur 18.október frá kl 11.00-18.00

Aðgangur að sjóböðunum og súpa að hætti Hvammsvíkur er innifalið í námskeiðsverði.  Endurnærandi stund þar sem mjúkt jógaflæði, öndunaræfingar & djúpslökun munu leiða þig inn í dýpri kyrrð & ró.

Category: ,
Tags:

Description

HUGARRÓ & DJÚPSLÖKUN 

Gefðu þér heilan dag til að hægja á, anda dýpra og skapa rými fyrir meiri ró.

Hugarró & djúpslökun er endurnærandi dagur í dásamlegu umhverfi Hvammsvíkur þar sem við leiðum þig í gegnum mjúkt jógaflæði, yin yoga, meðvitaða öndun, sjódýfu (valfrjálst), bandvefslosun og djúpslökun.

Dagur þar sem þú færð að stíga aðeins út úr amstri hversdagsins, hlusta á líkamann og einfaldlega vera.

Á námskeiðinu leggjum við áherslu á:

Meðvitaða öndun – við notum öndunina til að róa hugann, tengjast líkamanum og færa okkur inn í meiri kyrrð.

Mjúkt jógaflæði – rólegar og mjúkar hreyfingar sem hjálpa okkur að losa um spennu og streitu í líkamanum.

Yin Yoga – við dveljum í góða stundu í stöðunum, gefum líkamanum tíma og rými, æfum okkur í að vera í núinu og að líta inn á við.

Bandvefslosun – við notum bolta til að losa um spennu og vinna með auma vöðva og bandvef líkamans.

Djúpslökun – við hægjum enn frekar á og leiðum líkama og huga inn í djúpa hvíld og ró.

Fræðslu – við skoðum taugakerfið og hvernig við getum nýtt einföld verkfæri & bjargráð til að skapa meiri ró og jafnvægi í daglegu lífi.

Sjódýfu – frískandi upplifun fyrir þau sem vilja.

Að námskeiðinu loknu tekur við notaleg stund í sjóböðum Hvammsvíkur, þar sem þú getur látið daginn síga inn og notið náttúrunnar og kyrrðarinnar. Aðgangur í sjóböðin og sjávarréttasúpa er innifalið í námskeiðsverði.

Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum og dýnur verða á staðnum.

SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 2026
Kl. 11:00–18:00
Hlaðan í Hvammsvík, Hvalfirði

Verð: 45.000 kr.

Innifalið í verði er námskeiðið, sjávarréttasúpa að hætti Hvammsvíkur (vegan súpa einnig í boði), kaffi, te og vatn ásamt aðgangi að sjóböðunum að námskeiði loknu.

Takmarkaður fjöldi plássa í boði

 

Leiðbeinendur

Eva Katrín Sigurðardóttir
Eva er almennur læknir sem brennur fyrir auknum forvörnum og bættri lýðheilsu. Hún er viðurkenndur Thermalist Instructor frá Søberg Institute, Wim Hof Method leiðbeinandi og HRV Breathwork leiðbeinandi frá Aria Breath. Samhliða læknisstörfum hefur Eva undanfarin ár haldið námskeið og fyrirlestra með áherslu á mátt andardráttarins til bættrar heilsu.

Silja Hrund Einarsdóttir
Silja er verkfræðingur og viðurkenndur jógakennari með viðbótarréttindi í Yin Yoga, bandvefslosun/Body Reroll, Yoga Nidra og SUP Yoga. Samhliða kaffihúsarekstri hefur Silja undanfarin ár kennt jóga og haldið fjölbreytt námskeið, bæði hér heima og erlendis, með áherslu á mjúka en styrkjandi hreyfingu, innri ró og aukna vellíðan í daglegu lífi.

 

Afbókunarskilmálar
Full endurgreiðsla er veitt ef afbókað er að minnsta kosti 7 dögum áður en námskeið hefst.

Additional information

Veldu súpu

Sjávarréttasúpa, Vegansúpa

Skráning

Einn þátttakandi, Vinatilboð fyrir tvo